Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama

Ert þú ein/n af þeim sem pínir þig til að  fara í ræktina og finnst það  leiðinlegt? Líkamsrækt er ekki einhæf grein. Til eru ótal margir möguleikar sem

Ađ komast í form ţarf ekki ađ vera leiđinlegt!

Ert þú ein/n af þeim sem pínir þig til að  fara í ræktina og finnst það  leiðinlegt?
Líkamsrækt er ekki einhæf grein. Til eru ótal margir möguleikar sem þurfa ekkert að tengjast tækjum í ræktinni. Margar líkamsræktarstöðvar bjóða upp á fjölbreytt námskeið og opna tíma sem eru skemmtilegir þar sem þú brennir samt fleiri kaloríur en við að hlaupa á brettinu með hangandi haus því að það er svo leiðinlegt. Einnig er hægt að njóta útiverunnar með röskri göngu eða skokki  í hádeginu, t.d. eða eftir vinnu, og hlaða þannig upp orku fyrir næsta verkefni. Þú getur fjárfest í einum heilsubótarpakka sem inniheldur bolta, sippuband, æfingateygju og létt handlóð og þannig gert góðar æfingar heima hjá þér. Það er algjört lykilatriði að finnast gaman að hreyfa sig ef þú vilt gera þetta að vana og ná árangri. Kynntu þér möguleikana. Hér er aðeins brot af því sem í boði er:  

Bardaga íþróttir
Það er ótrúlega gaman og áhrifaríkt að skella sér í bardagaíþrótt: Karate, taekwondo, box, fitness box, muaytai kickbox, tai fitness boxing, mma, brasilískt jiujitsu . Bardagaíþróttir eiga það sameiginlegt að þar brennir maður mikið af kaloríum, þær auka til muna styrk og eru gríðarlega skemmtilegar. Lítið á eftirfarandi síður til að fá frekari upplýsingar. www.mjolnir.is, www.box.is, www.pumpingiron.is,www.karate.is, www.taekwondo.is.  

Dans
Hverjum finnst ekki gaman að  dansa? Af hverju ekki að skella sér á dansnámskeið og fá þar skemmtun og brennslu í einum pakka? Til eru alls kyns tegundir af dansi, t.d. hipp hopp, ballet, djass og magadans. Svo er hægt t.d. að skráð sig og makann í samkvæmisdansa eins og t.d. salsa. Kynntu þér málið og skráðu þig í dans sem þér þykir spennandi. Til eru ótalmörg dansfélög og eru hér nokkur nefnd: www.dansari.is, www.dansskoli.is, www.dansskolibb.is, www.magadans.is, www.worldclass.is, www.jsb.is

Klifur
Klifur reynir rosalega á líkamann og er hættulega skemmtilegt. Í klifri þarf að notast við alla vöðva í líkamanum og er þetta því mjög góður kostur fyrir þá sem vilja styrkja sig. Fáðu félagana eða vinkonurnar með þér og þið munuð skemmta ykkur konunglega. www.klifurhusid.is 

Finndu þér eitthvað sem þér þykir skemmtilegt! Þannig nærðu meiri árangri..

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarađili heilsubot.is : Sími 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiđ á bakviđ síđunaHvernig virkar síđan
Fara up

Nýskráning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan áhuga á:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viđ ađ ţreyta ţig ekki međ of tíđum sendingum eđa tilefnislausum, auk ţess ađ láta netfang ţitt aldrei öđrum í té.