Svarið við þessu er:
Þegar hentar þér best og þér finnst þú vera með mestu orkuna. Þá reynir þú mest á þig. Margir telja að því fyrr sem þú æfir því meiri árangri náir þú og að morgnarnir séu bestir. Í fræðilegum skilningi skiptir það engu máli. Margir eru ekki morgunmanneskjur og ná ekki eins góðri æfingu eins og ef æft er seinni partinn. Svo eru aðrir sem geta illa sofið eftir æfingu á kvöldin og æfa því frekar á morgnana. Sá tími, sem fólk velur oftast til að æfa, er kl. 6 á morgnnna, 11:30 í hádeginu en langmest er að gera frá 16-20. Á þessum tíma er oft erfitt að fá bílastæði og oftast löng bið í tækin. Gott er að taka með sér sippuband í ræktina til að hita upp fyrir styrktaræfingar eða halda sér gangangi meðan beðið er eftir brennslutækjum.Þeir opnu tímar, sem eru í boði á þessum tíma, þá sérstaklega spinningtímar, eru oftar en ekki fullir þegar tíminn á að byrja og þurfa margir að koma hátt í hálftíma fyrr til að tryggja sér tæki. Huga þarf að því að aðlaga æfingarprógrammið eftir því hve mikið er að gera og forðast það að standa og bíða. Betra er að hlaupa í þá æfingu sem laust er í.












