Hvað er bailine
Bailine er vaxtarmótunarmeðferð fyrir konur eldri en 18 ára.Meðferðin er þríþætt
- Andleg þjálfun
- Þjálfun í tölvustýrðu bailineþjálfunartæki
- Leiðbeiningar um mataræði
Andleg þjálfun
Byggist á því að hlusta á hvatningar- og fræðsludiska í hverri meðferð.Þjálfun í tölvustýrðu þjálfunartæki
24 mínútna þjálfun ca. tvisvar sinnum í viku, sérsniðin eftir þínum líkama og eftir vaxtargreiningunni. Eftir fimm tíma ferðu í nýja greiningu og mælingu. Ný forrit eru notuð í áframhaldandi meðferð.Leiðbeiningar um mataræði
Fer eftir þörfum hvers einstaklings fyrir sig. Hjá bailine er einstaklingurinn í fyrirrúmi og við vinnum út frá því að engin kona er eins, hver og ein grennir sig á sinn eigin hátt.Hver kona fær einstaklingsmiðaða meðferð í notalegum einkaklefa. Við göngum nefnilega út frá því að þyngdar og vaxtarvandamál séu einkamál hverrar konu. Saman ákveðum við hvar þú vilt vera stinnari og grennri.
Bailine hentar öllum konum sem vilja grenna sig og ná góðum og skjótum árangri, halda sér flottum, auka vellíðan sína og efla sjálfstraustið.
Bailine er líka mjög hentugt konum sem eiga erfitt með að stunda hefðbundna líkamsrækt vegna gigtar, bakverkja eða annarra heilsuvandamála. Einnig tilvalið fyrir konur eftir barnsburð og til að styrkja grindarbotnsvöðvana.
Þjálfunartækið okkar eykur brennslu, viðheldur og eykur vöðvamassann, stinnir líkamann og eykur hreysti og vellíðan.
Hjá Bailine bjóðum við upp á margskonar sérmeðferðir t.d. fyrir, maga, læri, mjaðmir-mitti ásamt fitubrennslu, babyboom, djúpnudd. Einnig erum við með forrit sem vinna sérstaklega vel á appelsínu húð og slappri húð.
Bailine kerfið er norskt að uppruna og eru nú starfræktar stofur í 13 löndum þar á meðal 70 í Noregi, 50 í Danmörku og 2 í Færeyjum og nú gefst íslenskum konum líka tækifæri til að að prufa heimsins þægilegustu megrun.
Mikið er lagt upp úr öryggi og gæðum meðferðanna og má nefna aðbailine eru viðurkennd af Nemko og samþykkt samkvæmt öryggisreglugerðum IEC í Bandaríkjunum og CE/EEA (Europeiska direktiv(93/42/EEC)) .
Meðferðirnar eru framkvæmdar af sérþjálfuðu starfsfólki.
Bailine er ávísun á betra líf.
Hér á eftir koma 2 árangurssögur!
Neðri partur er mitt erfiðleika svæði og það hefur verið erfitt fyrir mig að fá líkamann í rétt hlutföll, alltaf mun grennri að ofan en neðan. Ég hef verið í bailine í 4 vikur og er alsæl með árangurinn. Ég sé og finn mikinn mun á mjöðmum og lærum ásamt stinnari húð. Ég æfi mikið og borða hollan mat en það þarf mikið til að losna við erfiðleikasvæðin svo að bailine setur punktin yfir I ið og virkar mjög vel með.
Helga Hilmarsdóttir, IAK Einkaþjálfari.
Ég er 30 ára 3 barna móðir sem hefur glímt við veruleg aukakíló og hef náð góðum árangri við að losa mig við þau með æfingum og góðu matarræði. Ég ákvað svo að prófa Bailine til að losa mig við síðustu 10 kílóin, ég er búin að fara í Bailine 2 sinnum í viku í 4 vikur og líður frábærlega, árangurinn hefur ekki látið á sér standa, eftir 5 tíma þá voru farin 3.5kg, 31 cm og 1,6 % fita og er ekki frá því að líkaminn hefur verið að mótast líka. Ég kem til með að halda áfram í Bailine þangað til mínu markmiði er náð sem væntanlega tekur ekki langan tíma miðað við þennan frábæra árangur sem ég hef náð. Ég mæli hiklaust með Bailine.
Ester Hilmarsdóttir













