Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama

Boot Camp námskeiðin fóru af stað haustið 2004. Það voru 20 djarfir einstaklingar sem skráðu sig á fyrsta námskeiðið og það leið ekki á löngu þar til

Bootcamp


Boot Camp námskeiðin fóru af stað haustið 2004. Það voru 20 djarfir einstaklingar sem skráðu sig á fyrsta námskeiðið og það leið ekki á löngu þar til hróður þeirra spurðist út. Í dag eru að jafnaði 1000 manns sem stunda æfingarnar reglubundið og fleiri þúsundir hafa komið á námskeiðin. Boot Camp nafnið varð til árið 2002 þegar Birgir fékk einkaleyfi af nafninu í tengslum við sjónvarpsþætti sem hann hafði þá þegar samið handrit að. Ekkert varð úr þáttunum á þeim tíma og fékk nafnið þess í stað notkun þegar námskeiðin hófust. Bootcamp ehf. var stofnað til að sjá um rekstur námskeiðanna og annað sem tengist Boot Camp nafninu og er í eigu Arnalds Birgis Konráðssonar og Róberts Traustasonar. Bootcamp ehf. er með höfuðstöðvar á Suðurlandsbraut 6b, 108 Reykjavík. Í dag er Boot Camp kennt á 6 þéttbýlissvæðum á landinu; á Akranesi, Akureyri, Austfjörðum, í Reykjanesbæ, á Selfossi og í Reykjavík. Allir þjálfarar hafa sótt sérstakt Boot Camp þjálfaranámskeið hjá höfuðstöðvunum í Reykjavík og því eru tímarnir kenndir eftir sömu hugmyndafræði og aðferð hvert sem farið er. Hvert útibú er rekið sér en gott samstarf er á milli þeirra og fara kennarar oft í heimsóknir á milli staða og mæta í tíma eða kenna þá. Boot Camp
Suðurlandsbraut 6b
Sími: 517 6070

bootcamp@bootcamp.is
www.bootcamp.is

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarađili heilsubot.is : Sími 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiđ á bakviđ síđunaHvernig virkar síđan
Fara up

Nýskráning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan áhuga á:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viđ ađ ţreyta ţig ekki međ of tíđum sendingum eđa tilefnislausum, auk ţess ađ láta netfang ţitt aldrei öđrum í té.