Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama

Líkamsræktarsalir landsins eru fullir af föstum lyftingartækjum sem eiga að hjálpa fólki að gera æfingarnar rétt og á þar með að verja fólk fyrir

Eru föst tćki betri en laus áhöld?

Líkamsræktarsalir landsins eru fullir af föstum lyftingartækjum sem eiga að hjálpa fólki að gera æfingarnar rétt og á þar með að verja fólk fyrir meiðslum. Sumir halda að lóð og önnur laus áhöld séu bara fyrir lengra komna og alltof hættulegt fyrir byrjendur. Það er rétt að það getur verið hættulegt að henda sér í æfingar án þess að vera búin að fá kennslu enn aftur á móti ef æfingar með lóð, bolta, teygjur og fleiri laus áhöld eru framkvæmdar rétt eru þær mun öruggari og áhrifaríkari enn föst tæki.

Hér koma rök fyrir því
Föst tæki eru oftast hönnuð þannig að þú situr í stól með stólbak eða liggur á bekk. Þar með er mikill hluti af líkamanum í slökun meðan er einangrað einn vöðvahóp. Styrkur í tækjum er ekki það sama og styrkur í daglegu lífi. Aldrei í daglegum hreyfingum er notast bara við einn vöðvahóp. Þegar þú beygir þig niður, heldur á innkaupapokunum, ýtir einhverju frá þér eða lyftir einhverju ertu að nota mjög stóran hluta af líkamanum t.d  bak, rass og kvið. Þegar þú situr í æfingatækinu og ert t.d í brjóstpressutæki er bakið og kviður upp við stólbakið og fætur hangandi niður og þar með allir mikilvægustu vöðvar líkamans í slökun. Með þessu ertu einungis að kenna líkamanum að slökkva á þessum vöðvum þegar þú framkvæmir þessa hreyfingu án tækis og þótt það séu minni líkur á meiðslum í ræktinni eru það meiri líkur á meiðslum í daglegu lífi.

Meiri brennsla
Vöðvarnir þurfa orku til að framkvæma æfingu og þá segir það sér svolitið sjálft að því fleiri vöðvar sem eru að vinna því meiri kaloríubrennsla er í gangi. Þar með er betra að nota marga vöðvahópa í æfingu en fáa. Þegar notað eru laus áhöld við æfingu þarf fleiri vöðva til að halda stöðugleika. Nauðsynlegt er að spenna kvið, bak og rass og kenna þar með líkamanum að nota miðjuna til að halda góðri stöðu og verja líkaman fyrir meiðslum.

Við hjá heilsubót mælum með að lesa lýsingu af æfingum og skoða æfingarmyndböndin okkar eða panta tíma hjá þjálfara í ykkar stöð og fá kennslu.

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarađili heilsubot.is : Sími 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiđ á bakviđ síđunaHvernig virkar síđan
Fara up

Nýskráning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan áhuga á:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viđ ađ ţreyta ţig ekki međ of tíđum sendingum eđa tilefnislausum, auk ţess ađ láta netfang ţitt aldrei öđrum í té.