Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hönnuður hefur verið
að slá í gegn að undanförnu með fylgihlutalínu sína Gyðja collection á íslenskri
jafnt sem erlendri
Gyđja collection
Deila:

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hönnuður hefur verið
að slá í gegn að undanförnu með fylgihlutalínu sína Gyðja collection á íslenskri
jafnt sem erlendri grundu. Heilsubót fékk að skyggnast aðeins inní heim Gyðju collection og spurði Sigrúnu nokkurra spurninga útí hönnun
hennar og framtíðardrauma.

Hvað varð til þess að þú fórst að hanna fylgihluti undir nafninu Gyðja collection?
"Ég hef alltaf haft þetta pínu í mér og haft
áhuga á hönnun og að skapa. Svo kom Gyðja eiginlega bara til mín þegar ég var stödd í Egyptalandi fyrir nokkrum árum en þar
fékk ég tækifæri til að hanna fyrsta parið af stígvélum og tösku í stíl. í kjölfarið ákvað ég
að prufa að fara úti að hanna skó, töskur og belti og finna viðbrögðin á vefverslun merkisins www.gydja.is. Móttökurnar komu mér
reglulega á óvart en fyrsta sending seldist upp á þremur dögum. Þá fór maður að vera stórhuga og sjá að þetta
gæti hugsanlega orðið eitthvað stærra og meira".
Nú hafa sést myndir af fína og fræga fólkinu í Hollywood í þinni hönnun, leggurðu áheyrslu á erlenda
markaðsetningu ?
"Já
þegar ég hafði fundið fyrir móttökunum hérlendis þá ákvað ég strax að einbeita mér líka að erlenda
markaðnum þar sem við íslendingar erum svo fá og erfitt að vera að hanna og láta framleiða einungis fyrir okkar litlu þjóð. Ég
fór því í verkefni hjá Útflutningsráði sem heitir Útflutningsaukning og hagvöxtur sem reyndist mér mjög vel. Ég hef
svo verið að auka við mig af dreifingaraðilum og samstarfsaðilum erlendis og verið að fara með Gyðju á vörusýningar í Los Angeles og Las
Vegas og hefur línunni verið vel tekið úti líka".
Hvað er svo framundan hjá Gyðju collection?
"Það er ýmislegt framundan. Ég var að koma frá Bandaríkjunum fyrir ekki
svo löngu þar sem ég var að markaðssetja og selja Gyðju, bæta við fólki, heimsækja tískuvikur og skoða strauma og stefnur.Um
þessar mundir er ég að vinna í eftirfylgninni og skoða hina ýmsu möguleika og tækifæri með Gyðju. En Gyðja fékk mjög
góðan hljómgrunn þarna úti og komu upp ýmis tækifæri sem ég er að skoða. Auk þess er ég að skoða tilvonandi
samstarfsaðila vel. Ég skoða hlutina vandlega og öll tækifæri sem bjóðast en það borgar sig að fara varlega og
vera ekkert að drífa sig um og of í þessum málum".
Hvað myndirðu ráðleggja þeim einstaklingum sem myndu vilja fara útí eigin hönnun en þora kannski ekki alveg að taka fyrsta
skrefið?
"Ég ráðlegg þeim sem eiga sér draum hvort sem það er eigin hönnun
eða eitthvað annað að kasta sér í djúpu laugina og sjá hvað gerist. Oftar en ekki eru takmörkin okkar þau sem við setjum okkur
sjálf og því skiptir miklu máli að leyfa ekki neikvæðum hugsunum og hræðslu að taka völdin heldur leyfa sér bara að hugsa
jákvætt og dreyma. Það er ekki hægt að vita né læra eða skipuleggja fyrirfram hvernig hugmyndinni á eftir að ganga eða
nákvæmlega skref fyrir skref hvernig á að fara að því að láta drauminn rætast, en maður lærir á leiðinni og hefur gaman
af, því eitt er víst að ef maður leyfir hræðslu að taka völdin og stoppa sig þá gerist nákvæmlega ekki neytt og draumurinn
eða viðskiptahugmyndin verður alltaf bara draumur".
Hverjir eru þínir framtíðardraumar varðandi Gyðju collection?
"Draumurinn er sá að ég geti
haldið áfram að vinna við drauminn minn Gyðju og við að byggja merkið upp. Að Gyðja muni halda áfram að vaxa og dafna og vonandi teygja anga
sína útum heim allan í nánustu framtíð" J
...