Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama

Hvernig á að velja íþróttaskó? Það getur verið vandasamt að velja sér íþróttarskó í fyrsta skipti. Til eru alls kyns gerðir og tegundir eftir því

Íţróttaskór

Hvernig á að velja íþróttaskó?
Það getur verið vandasamt að velja sér íþróttarskó í fyrsta skipti. Til eru alls kyns gerðir og tegundir eftir því hvernig þjálfun þú ert að fara að stunda. Þar má nefna hlaupaskó, göngu skó, erobi-skó o.fl. Rangt val á skóm eykur líkurnar á hælsærismyndun, óþægindum og jafnvel meiðslum. Íþróttaskór er ekki sá hlutur sem á að spara í, þetta er fjárfesting sem hjálpar þér að ná sem bestum árangri. Þeir sem að nota góða skó hætta síður vegna meiðsla og óþæginda.


Skór eru valdir eftir því hvaða hreyfing er notuð í æfingum
Erobik-skór:  Réttu skórnir í líkamsræktarstöðina, erobik-tíma, námskeið og tækjasalinn. Þessir skór eru sveigjanlegir og styðja vel við flestar fótahreyfingar. Það er í lagi að nota þessa skó á hlaupabretti og önnur brennslutæki í smástund, t.d. til upphitunar en fyrir brennsludagana er gott að eiga hlaupaskó einnig.
 
Hlaupaskór:  Góðir hlaupaskór eru mjög mikilvægir hvort sem um er að ræða fyrir stutt eða löng hlaup. Þessa skó á einungis að nota í hlaupum en ekki í öðrum íþróttum. Gott er að nota tvö pör til skiptis, það minnkar líkurnar á meiðslum. Til þess að finna hina fullkomnu hlaupaskó mælum við með því að fara í hlaupagreiningu t.d. hjá Össuri, þar er fundið út hvaða skór henta þér best. Ekki er nóg að fara út í búð og kaupa dýrustu skóna því að þeir eru með mismunandi styrkingum. Hægt er að fá þá með utanfótarstyrkingu og innanfótarstyrkingu allt eftir því hvað hentar þér best.
 
Trail-skór eða utanvegaskór: Henta betur utan vega á ójöfnu undirlagi heldur en venjulegir hlaupaskór. Gott grip á sólunum og góður stuðningur yfir ökkla.

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarađili heilsubot.is : Sími 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiđ á bakviđ síđunaHvernig virkar síđan
Fara up

Nýskráning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan áhuga á:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viđ ađ ţreyta ţig ekki međ of tíđum sendingum eđa tilefnislausum, auk ţess ađ láta netfang ţitt aldrei öđrum í té.