Heilsubót - betri lķšan ķ heilbrigšari lķkama

Langflestir þeirra sem eiga líkamsræktarkort hafa sett sér markmið, oftast eru þau sett í janúar og heita þá “áramótaheit” eða í september

Kannt žś aš setja žér markmiš?

Langflestir þeirra sem eiga líkamsræktarkort hafa sett sér markmið, oftast eru þau sett í janúar og heita þá “áramótaheit” eða í september þegar grillseasonið er búið.

Markmið eru undirstaða árangurs EF þau eru rétt fram sett!

Markmiðum má í raun skipta í tvennt; Niðurstöðumarkmið og Frammistöðumarkmið.

Niðurstöðumarkmið einblína á lokatakmarkið, þ.e. hvert þú vilt fara.
Dæmi um þetta er konan sem er 120kg og vill verða 60kg, niðurstöðumarkmið hennar er að missa 60kg sem er “aðeins” meira en að segja það!  

Frammistöðumarkmið einblína á hvernig þú nærð lokatakmarkinu og brjóta það niður.
Dæmi um það er þegar 120kg konan ákveður að með því að borða eftir matarplaninu frá Fannari og fara í spinning 3x í viku léttist hún um 4kg á mánuði og nái því 60kg takmarkinu eftir rúmlega ár.  

Niðurstöðumarkmið er stórtæk og valda oft kvíða, þau eru algengust og ÖLL höfum við sett okkur svoleiðis markmið og ÖLL höfum við klikkað á þeim. Handboltalandsliðið á ÓL 2008 með Ólaf Stefánsson í fararbroddi sett sér markmið og ég skal lofa því að þau voru öll frammistöðutengd frekar en niðurstöðu. Það sem gerist þegar við setjum okkur markmið, skýr og raunsæ, er að við beinum sjónum okkar að þeim hlutum sem við þurfum að gera til að láta þetta markmið verða að veruleika. Þegar við setjum okkur “alvöru” markmið þá brjótum við það stóra niður í smærri einingar sem síðan færa okkur smáa sigra sem auka sjálfstraustið og koma okkur enn lengra.

Mundu bara; allar langferðir hefjast á einu skrefi og krefjast margra lítilla skrefa.






   Heimild:
   Fannar Karvel
   Íþróttafræðingur B.Sc og einkaþjálfari

   www.karvelio.com

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarašili heilsubot.is : Sķmi 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiš į bakviš sķšunaHvernig virkar sķšan
Fara up

Nżskrįning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan įhuga į:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viš aš žreyta žig ekki meš of tķšum sendingum eša tilefnislausum, auk žess aš lįta netfang žitt aldrei öšrum ķ té.