Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama

Þeir sem vilja ennþá halda í þá trú að 15.000 kviðkreppur á dag skili þvottabrettinu tandurhreinu mega hætta að lesa hérna; restin er ætluð þeim sem vilja

Kviđćfingar fyrir lengra komna…

Þeir sem vilja ennþá halda í þá trú að 15.000 kviðkreppur á dag skili þvottabrettinu tandurhreinu mega hætta að lesa hérna; restin er ætluð þeim sem vilja gera hlutina af alvöru.  

Byrjum á smá grunni
ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ BRENNA FITU AF ÁKVEÐNU SVÆÐI! Þá er það frá, ótrúlegt hvað margir halda í þá trú að með því að gera mikið magn æfinga fyrir ákveðin svæði sé hægt að brenna fitu af þessu sama svæði. Líkaminn er ein heild og brennir fitunni misjafnt yfir líkamann. Þar af leiðandi þarftu að borða almennilega til að brenna fitunni af kviðnum og æfa af alvöru! Meira um mataræðið síðar. Það þekkja allir klassísku kviðæfingarnar; uppsetur, kviðkreppur o.s.frv. Prýðisgóðar æfingar svona í bland við annað en ef ætlunin er að byggja upp sterka miðju (core fyrir þá sem vilja googla) þá eru þær einfaldlega ekki nóg því þær taka aðallega á fremsta parti miðjunnar, rectus abdominis eða hinu klassíska þvottabretti. Fyrir sterkan miðhluta þarf að taka alla hluta hans.

Planki






Planki
Taktu þér stöðu með olbogana í gólfi beint undir öxlum, upp á tám (á hnjám fyrir byrjendur) og haltu líkamanum algjörlega beinum. Einbeittu þér að því að draga naflann inn og upp til að virkja djúpvöðvana.
Haltu stöðunni í amk. 20sek og taktu amk. 3sett.
Fyrir þá sem vilja áskorun þá þurfa leikmenn í sumardeildum NBA að halda þessari stöðu í lágmark 6mín!

Hliðarplanki
Hliðarplanki
Taktu þér stöðu með annan olnbogann í gólfi beint undir öxl, upp á jarka neðri fótar. Haltu líkamanum algjörlega beinum. Byrjendur geta verið á hnjám. Haltu stöðunni í amk. 20sek og taktu amk. 3sett.




Heimild:
Fannar Karvel
Einkaþjálfari

www.karvelio.com

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarađili heilsubot.is : Sími 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiđ á bakviđ síđunaHvernig virkar síđan
Fara up

Nýskráning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan áhuga á:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viđ ađ ţreyta ţig ekki međ of tíđum sendingum eđa tilefnislausum, auk ţess ađ láta netfang ţitt aldrei öđrum í té.