Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama

Til eru tvenns konar vöðvaþræðir; hægir (slow twitch muscle fibers) og hraðir (fast twitch muscle fibers). Hraðir vöðvaþræðir eru fljótir að dragast saman

Loftfirt ţol og loftháđ ţol

Til eru tvenns konar vöðvaþræðir; hægir (slow twitch muscle fibers) og hraðir (fast twitch muscle fibers). Hraðir vöðvaþræðir eru fljótir að dragast saman og með miklu afli. Þeir eru bæði loftháðir og loftfirtir. Hægir vöðvaþræðir eru lengi að dragast saman, hafa minna afl, mikið þol og mikið pláss fyrir súrerfnisbirgðir.

Þol skiptist í loftháð og loftfirt þol og er því skipt útfrá mismunandi hraða og ákafa álags.

Loftfirt þol
Loftfirt þol er geta líkamans til að vinna við mikinn styrk og mikla ákefð í stuttan tíma eins og snerpuþjálfun og lyftingarþjálfun. Við loftfirða þjálfun er mikið notast við hraða vöðvaþræði (fast twitch muscle fibers).

Loftháð þol
Loftháð þol er geta líkamans til að vinna við minna álag í lengri tíma. Langhlaup, skokk og almenn þolþjálfun sem stendur yfir í langan tíma er loftháð þjálfun. Við loftháða þjálfun er notað hæga vöðvaþræði (low twitch muscle fibers)

Loftháð þjálfun styrkir súrefniskerfið, hjarta og æðakerfið og er nauðsynleg fyrir almenna heilsu. Loftfirt þjálfun er einnig nauðsynleg því við þurfum styrk til að takast á við daginn. Ef markmiðið er að grennast og komast í sem besta formið er best að gera bæði loftháða og loftfirða þjálfun, t.d styrktar-snerpuæfingar 2- 3 svar í viku mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Þolþjálfun allaveganna 1-2svar í viku t.d þriðjudaga, fimmtudaga.

Gott er að taka 1 til 2 daga í frí til að hvíla líkamann. Líkaminn vinnur líka í hvíld og þarf því ekki að æfa í marga tíma á hverjum degi. Styttu æfingarnar þínar niður í klst og notaðu extra tíma til að útbúa hollar máltíðir fyrir daginn.

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarađili heilsubot.is : Sími 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiđ á bakviđ síđunaHvernig virkar síđan
Fara up

Nýskráning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan áhuga á:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viđ ađ ţreyta ţig ekki međ of tíđum sendingum eđa tilefnislausum, auk ţess ađ láta netfang ţitt aldrei öđrum í té.