Til þess að ná
góðum árangri er nauðsynlegt að fylgjast vel með. Ef það er ekki gert er hætta á því að fólk standi í stað.
Hvort sem um er að ræða grenningu, uppbyggingu eða æfingalega séð er ekkert meira hvetjandi en að sjá á blaði árangurinn sem hefur
náðst.Ef markmiðin þín eru að grennast eða byggja upp er nauðsynlegt að mæla sig reglulega. Vigtin er alls ekki marktæk og eiginlega ónauðsynleg. Hún getur rokkað upp og niður um nokkur kg eftir því hvað þú hefur verið að gera og borða og hvernig fötum þú ert í. Einnig er vöðvar þyngri en fita og ef æfingar eru gerðar eins og mælt er með eykst vöðvamassinn og fitan minnkar og sést sá árangur alls ekki með vigt.
Til þess að fylgjast með alvöru árangri er best að taka ummálsmælingar á viku til tveggja vikna fresti, því það eru breytingarnar sem sjást í speglinum og á fötunum.
Svona á að mæla
| Upphl: | um miðjan upphandlegg |
| Brjóst: | út frá geirvörtum og allan hringinn |
| Mitti: | út frá nafla og allan hringinn |
| Mjaðmir: | frá miðjum rassi og allan hringinn |
| Læri: | stæðsti hluti læris |
Með þessu sérðu hvort þú sért á réttri leið eða þarft að breyta til. Ef sentimetrunum er ekki að fækka og
þér finnst þú hafa verið mjög dugleg/ur bæði í ræktinni og mataræðinu er mælt með því að minnka
máltíðarskammtana örlítið og bæta smá brennslu eða ákefð í æfingarnar.
Bæting á æfingum
Taktu með þér stílabók og penna í ræktina og skrifaðu niður æfingarnar sem þú gerir, endurtekningarnar og þyngdina.
Taktu einnig tímann í þolæfingunum og skrifaðu niður lengd eða endurtekningar + tíma. Hvort sem það er að auka fjölda á
æfingum með eigin líkama, auka þolið í hlaupum, sippi o.fl. eða þyngja í lóðaræfingum er nauðsynlegt að sjá að
maður sé að bæta sig. Ef þú hefur ekkert verið að bæta þig skaltu passa að vera ekki of góð/ur við sjálfan þig!
Árangurinn kemur með erfiðinu.
Hvettu sjálfan þig í að gera einni endurtekningu fleirri eða þyngja örlítið meira en á seinustu æfingu!
Á „Mín síða“ getur þú haldið utan um árangurinn þinn, mælingarnar þínar, skráð niður
markmið þín og einnig haldið matardagbók. Endilega sendu okkur fyrirspurn á heilsubot@heilsubot.is












