Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama

Af hverju styrktaræfingar? Til þess að fá fallega mótaðan líkama er nauðsynlegt að taka góðar styrktaræfingar. Þú getur grennst á því að taka mataræðið í

Styrktarćfingar

Af hverju styrktaræfingar?
Til þess að fá fallega mótaðan líkama er nauðsynlegt að taka góðar styrktaræfingar. Þú getur grennst á því að taka mataræðið í gegn og stunda einungis brennslu en vilja ekki allir hámarksárangur? Líkaminn brennir fitu eingöngu í vöðvunum og er því augljóst að því meiri vöðvamassa sem þú ert með því meiri fitu brennir þú. Þeir sem sleppa styrktaræfingum en taka mataræði í gegn og kannski smábrennslu halda sama formi og þeir voru í.
 

Styrktaræfingar þurfa ekki að þýða risa vöðvar!
Til þess að fá fallega tónaða vöðva þarf að stunda styrktaræfingar. Margar konur eru því miður hræddar við að gera styrktaræfingar vegna hræðslu um að verða stórar og karlmannlegar. Það vill oft gleymast að kvenlíkaminn er ekki með testósteróni í því magni sem nauðsynlegt er fyrir uppbyggingu vöðva, því er mjög erfitt fyrir konur að auka vöðvamassa.

Hvernig æfingar eru bestar?
Til eru all skyns tegundir af styrktaræfingum og æfingarprógrömmum. Hægt er að gera styrktaræfingar með eigin líkama, bolta, teygjum, handlóðum, stöngum eða hverju sem manni dettur í hug. Mjög mismunandi er hverju þjálfarar mæla með og er því mjög líklegt og þú fáir alltaf nýjar upplýsingar og ólík prógrömm eftir þjálfurum sem þú talar við. Það er lang best að halda sig við einn þjálfara sem maður treystir vel og fylgja því prógrammi sem að hann mælir með. Að blanda saman aðferðum frá mörgum þjálfurum getur staðið í vegi fyrir árangri.
Flestar tegundir styrktaræfinga eru góðar ef þú gerir þær réttar. Styrktaræfingar eiga að vera fjölbreyttar og er því gott að vera með úrval af æfingum í pokahorninu og gera þær sem henta þér hverju sinni en gæta þess að taka alla vöðvahópa. Það er alrangt að teygjur og boltar nægi ekki, líkaminn skynjar ekki hvort þú ert með þung lóð eða teygju, meðan þú ert að taka á er líkaminn að vinna. Æfingarnar eiga alltaf að vera krefjandi og þannig að þú átt helst ekki að geta lyft síðustu lyftunni.



Hér á heilsubot.is getur þú valið þér góð styrktarprógrömm og fylgst með árangri þínum.

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarađili heilsubot.is : Sími 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiđ á bakviđ síđunaHvernig virkar síđan
Fara up

Nýskráning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan áhuga á:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viđ ađ ţreyta ţig ekki međ of tíđum sendingum eđa tilefnislausum, auk ţess ađ láta netfang ţitt aldrei öđrum í té.