Heilsubót - betri líđan í heilbrigđari líkama

Tabata method er lotuþjálfun sem er orðin gríðarlega vinsæl! Hún gengur út á stutta erfiða spretti og stuttar hvíldir á milli. Vinsælast hefur verið að

Tabata method

Tabata method er lotuþjálfun sem er orðin gríðarlega vinsæl! Hún gengur út á stutta erfiða spretti og stuttar hvíldir á milli. Vinsælast hefur verið að nota 8x20 og 10 sek. í hvíld sem er þá 8 sinnum 20 sek. sprettir og 10 sek. hvíld á milli. Þetta eru aðeins 20 sekúndur í senn og á þá að klára sig alveg og gera sitt allra besta í hverjum spretti. Betra er að taka færri spretti vel heldur en fleiri rólega. Það er í lagi að byrja á 4 sprettum, fara svo upp í 6 og síðan í 8 því að þessi æfing er mjög erfið. Gott er að fylgjast með púlsinum á æfingum með púlsmæli þar sem að æfingarnar reyna vel á þolið.  

Að auka hraðann
Í staðinn fyrir að fjölga úr 8 sprettum í 10 er betra að auka frekar hraðann. Hægt er að nota þessa aðferð við allar tegundir æfinga, bæði brennslu, s.s. hlaup, sipp, hopp, hjól, crosstrainer, og þær æfingar sem ykkur dettur í hug en einnig er hægt að gera þetta með styrktaræfingar. t.d. hnébeygjur, upplyftur, dýfur o.s.frv. Með þessum hætti nær líkaminn aldrei að venjast aðstæðum og verður því brennslan í hámarki á æfingunni og marga tíma á eftir. Það er óhætt að segja að þessi æfing sé með þeim áhrifaríkari og er líka mjög góð ef markmiðið er að bæta þol.

Hægt að flétta saman við aðrar æfingar
Hægt er nota þessa aðferð sem hluta af annarri æfingu og einnig að gera heila æfingu út frá þessu með því að gera nokkrar æfingar og allar þá með 8x20 sek. sprettum. Gott er að hafa klukku með sekúnduvísi á veggnum fyrir framan þig meðan þú gerir æfingarnar til að fylgjast með tímanum en annars er hægt að vera með skeiðklukku á sér eða símann á gólfinu fyrir framan sig.

Framsetning efnis

©2010 Aksjon slf : Rekstrarađili heilsubot.is : Sími 4 120 160 : info@heilsubot.is
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf
Fólkiđ á bakviđ síđunaHvernig virkar síđan
Fara up

Nýskráning

 

 
 
 
Ég hef sérstakan áhuga á:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Svo lofum viđ ađ ţreyta ţig ekki međ of tíđum sendingum eđa tilefnislausum, auk ţess ađ láta netfang ţitt aldrei öđrum í té.