Margir gefa sér ekki tíma til að teygja eftir
æfingar og halda að þær séu ekki eins mikilvægar og aðrar æfingar því þú styrkist ekkert né grennist af þeim.
Þetta er mikill misskilningur því teygjur gefa meiri styrk og fallegri vöðva ásamt því að fyrirbyggja meiðsl svo að minni líkur
séu á að hætta þurfi öllum æfingum.Við mikið álag styttast vöðvarnir og þarf teygjur til að teygja úr þeim aftur. Ef vöðvarnir styttast um meira en helming missa þeir allan kraft sem gefur til kynna að langir vöðvar hafa meiri styrk en stuttir vöðvar. Passa þarf uppá að það sé gott jafnvægi bæði í styrk og liðleika á fram- og aftur hlið t.d mjóbak og kviður, bak og brjóst, framan á læri, aftan á læri. Ef t.d vöðvarnir framan á læri eru stirðir verða vöðvarnir aftan á læri kraftminni. Algengt er hjá fólki sem vinnur sitjandi vinnu daglega að bakvöðvarnir séu veikir þannig að herðablöðin dragast út til hliðanna og brjóstvöðvarnir stirðir sem veldur því að þeir draga axlirnar fram, þannig verður fólk hokið. Þetta veldur slæmri líkamsstöðu og líkamsbeitingu sem svo getur leitt af sér meiðsl við æfingar. Með því að styrkja veiku vöðvana og teygja vel á öllum vöðvum líkamans nærðu betri líkamsstöðu og betri árangri.
Hvernig skal teygja?
Vöðvar þurfa að vera heitir þegar teygt er á þeim því að kaldir vöðvar eru stífir og stirðir og geta því
teygjur á þeim valdið skaða. Hitið upp í sirka 10mín, en ef um er að ræða teygjur eftir æfingu þarf þess ekki. Góð
regla er að taka stæðstu vöðvana fyrst eins og fætur, bak, brjóst og enda svo á minni vöðvum eins og höndum, öxlum, háls,
kálfum. Nauðsynlegt er að hafa beint bak og anda djúft. Byrjið rólega og ekki rykkja í vöðvan eða beita þvinguðu afli. Gott er
að byrja að anda djúft og um leið og þú andar frá ferðu eins langt inní teygjuna og þú getur, andaðu svo aftur djúft og
farðu aðeins lengra um leið og þú andar frá þér. Haldið teygjunni í sirka 20-30 sek og helst í um 30-60 sek eftir mikil
átök. Teygjur eiga að vera slakandi og þægileg en ekki þvingandi. Takið lítið skref í einu og reynið að komast aðeins lengra
inní teygjuna í hvert skipti fyrir sig.Hér er hægt að sjá nokkrar sniðugar teygjur á doktor.is












